Áramótatilboð KUHN og Vélfangs ehf. lítur nú dagsins ljós með breyttum hætti en það verður eingöngu gefið út rafrænt í ár. Tilboðið gildir til 5. janúar 2023 og hvetjum við viðskiptavini til að bregðast hratt við og panta sem fyrst. Því miður hefur ekki enn náðst jafnvægi á milli framleiðslu og eftirspurnar en eins og allir vita gengur mikið á úti í hinum stóra heimi og aðfangakeðjan víða farin úr skorðum. Við höfum þó tryggt okkur einhver framleiðslupláss og ættum að geta annað eftirspurn nú sem fyrr. Við viljum einnig minna á að öllum vélum fylgja íslenskar leiðbeiningar og tveggja ára ábyrgð er á öllum vélum. Ein er sú vél sem slegið hefur í gegn hjá viðskiptavinum en það er KUHN FBP 3135 rúllusamstæðan, hún er með hinum einstaka plastbindibúnaði og þrívíddarpökkun og hefur reynst frábærlega. Þá er ekki úr vegi að minnast á KUHN GA 7501+ miðjumúgavélina sem er okkar allra vinsælasta múgavél frá upphafi. KUHN EL162-300 er jarðtætar sem hentar vel fyrir búnaðarfélög, verktaka og aðra stærri notendur. Önnur KUHN tæki má finna með því að smella hér.
Í lokin viljum við ítreka og hvetja bændur til að panta sem fyrst svo afhending verði tryggð á réttum tíma. Hægt er að nálgast tilboðið með því að smella hér á Kuhnhausttilbod2022
Einng má sjá tilboðið hér fyrir neðan