Aukahlutir
Um árabil hefur Vélfang verið leiðandi í sölu á aukahlutum og hefur aukahlutalínan vaxið jafnt og þétt. Hvort sem um ræðir aukahluti fyrir bændur eða verktaka þá hefur Vélfang lausnina.
Vélfang leggur mikinn metnað í að eiga aukahluti svo sem skóflur, fleyga, gaffla, krabba, sópa og rippera á lager.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Vélfangs.
Annovi Aldo er ítalskur framleiðandi á snjóblásurum. Þeir sérhæfa sig í smíði á stórum snjóblásurum fyrir stærri dráttarvélar þ.e. 250-500 hö.
Annovi Aldo snjóblásararnir eru vel búnir, sterkir og stórir.
AugerTorque er framleiðandi á stauraborum og öðrum aukahlutum ætluðum til jarðvegsvinnu. Aukahlutir frá AugerTorque státa af margra ára reynsla hér á landi en stauraborar á traktora, gröfur og krana hafa verið okkar helstu söluvörur undanfarin ár.
Demarec er hollenskur framleiðandi á aukahlutum í niðurrif og endurvinnslu.
Holms snjóplóga þarf vart að kynna hér á landi. Sænsk gæði í gegn, snjóplógar og sópar.
JCB bjóða heildarlausnir í aukahlutum fyrir vélar sínar sem og aðrar.
Skóflur, fleygar, sópar, jarðvegsþjöppur, glussastöðvar, vatnsdælur, kjarnaborar og fleira.
MSB fleygar hafa margsannað notagildi sitt hér á landi síðastliðin 20 ár. Þessir frábæru Suður-Kóresku fleygar koma í öllum stærðum.
Nox framleiða tjakkalaus rótortilt sem hent minni vélum afskaplega vel. Lítil, nett og engir tjakkar að þvælast fyrir.
Kinshofer eru hágæða þýskir aukahlutir fyrir gröfur og krana. Grabbar, klær, klemmur, gafflar og allt sem hugurinn girnist
Multavex er finnskur framleiðandi á hörpuskóflum. Hörpuskólfur fyrir allt frá 3-50 tonna vélar.
Proforge er breskt fyrirtæki sem framleiðir herfi og kílplóga. Áralöng reynsla af plógunum hér á landi.
Rabaud er franskur framleiðandi á hinum ýmsu aukahlutum, bjóða uppá lausnir fyrir landbúnað og aðra verktöku.
RF System er sænskur framleiðandi á aukahlutum fyrir gröfur og bjóða þeir upp á gott úrval af skóflum, sléttujárnum, sópum, kapalplógum, hraðtengjum, ripperum, göfflum og fleiru.
SE Equipment er sænskur framleiðandi sem býður heildarlausnir í aukahlutum fyrir gröfur og dráttarvélar. Skóflur, sléttujárn, sópar, hraðtengi, ripperar, gafflar og fleira.
Simex er ítalskur framleiðandi á fræsurum, hörpu- og brotskóflum. Þess má til gamans geta að Simex fræsarar voru notaðir við fræsun á Íshellinum í Langjökli.
Steelwrist er framsækið fyrirtæki sem framleiðir rótortilt á gröfur. Steelwrist einblýna á spennandi tækninýjungar og eru stöðugt leita nýrra leiða til að auðvelda notandanum verkið.
Snowek/Trombia er finnskur framleiðandi á snjóplugum, sand-saltdreifurum og sópum.
V og U plógar sem hannaðir hafa verið við íslesnkar aðstæður. Sóparnir er til í ýmsum útfærslum og meðal annars bjóða þeir vatnslausa sugusópa sem henta vel til notkunar innanhúss og utanhúss.
YPV er sænskur framleiðandi á aukahlutum. Ef þú gerir kröfu um ósvikin gæði þá skaltu versla aukahluti frá YPV. Lítið fjölskydlu fyrirtæki þar sem engu er til sparað.
YPV bjóða upp á umfangsmikið úrval af skóflum, snjóplógum, ripperum, sléttujárnum og fleiru.