CLAAS er einn stærsti framleiðandi landbúnaðartækja í heiminum í dag og er þriðja hver kornþreskivél sem seld er í Evrópu í dag af CLAAS gerð. CLAAS er einnig stærsti framleiðandi í heiminum af sjálfkeyrandi múgsöxurumm en þeir eru næst stærstir í framleiðslu línu CLAAS. CLAAS framleiðir einnig rúlluvélar, sjálfhleðsluvagna, stórbaggavélar og önnur heyvinnutæki og einnig standa þeir framarlega í hátækniiðnaði þar sem þeir hanna og framleiða vörur í bifreiðar og flugvélar. CLAAS er með framleiðslu á fimm stöðum í Þýskalandi og fimm stöðum fyrir utan Þýskaland en stærsta verksmiðjan og janframt höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Harsewinkel í N-Þýskalandi.
Þetta hófst allt saman þegar August Claas stofnaði fyrirtækið árið 1913 ásamt bræðrum sínum er þeir hófu framleiðslu á bindivélum og bjuggu til hinn fræga Claas-hnýtara sem enn er notaður í framleiðslu fyrirtækisins í dag. Fyrsta CLAAS kornþreskivélin fór í framleiðslu árið 1936 og segja má að frá þeim tíma hafi CLAAS verið samnefnari yfir kornþreskivélar en framleiðsla þeirra hefur öðru fremur staðið undir framgangi fyrirtækisins á heimsmarkaði.
Vorið 2003 hóf CLAAS framleiðslu á dráttarvélum í eigin nafni í Le Mans í Frakklandi en flaggskipið CLAAS Xerion er þó ennþá framleiddur í Harsewinkel. Árið 2010 var heildarstarfsmannafjöldi CLAAS í 14 verksmiðjum um allan heim 9.000 manns og heildarveltaveltan var u.þ.b. 2,5 milljarðar evra ( 407 Milljarðar ISK).
CLAAS er stærsti framleiðandi landbúnaðartækja og dráttarvéla í einkaeigu í heiminum og ekkert fyrirtæki getur boðið jafn breiða línu tækja til notkunar í landbúnaði.
Sjá nánar um CLAAS með því að smella hér.
CLAAS dráttarvélar
CLAAS býður upp á mikið úrval af dráttarvélum allt frá 70 hestöflum með hinum lipra CLAAS Elios upp í hinn 500 hestafla CLAAS Xerion 5000 sem er byltingakennd nýjung á sviði dráttarvéla. Hafið samband og leyfið okkur að kynna fyrir ykkur nýjar CLAAS dráttarvélar á verði sem gæti komið á óvart.
CLAAS ATOS 350-220
- Nútíma 3- og 4-strokka FARMotion vélar
- Mikið val á skiptingum með rafmagns bakkskiptingu og tveim eða þrem “powershift” hraðaaukningum.
- Hægir á sér og stoppar án þess að kúpling sé notuð, með svokölluðu SMART STOP.
- Með “dynamic” stýringu getur vélin beygt í fulla beygju með færri snúningum stýris. Meira
CLAAS ARION 460-410
- 90-140 hestafla turbocharged vélar.
- “QUADRISHIFT” gírskipting með “QUADRACTIV” powershift unit.
- Fjölhæfur stýripinni sem stjórnar skiptingu, aftur tengi, snúningshraða vélar og tveim aftur vökva sneiðum.
- Gott útsýni er úr húsi vélarinnar þökk sé nettri vélarhlíf og panoramic gagnsæu þaki.
- Tveggja punkta húsfjöðrun.
XERION 5000-4000
-
Síbreytileig skipting – yfir 500 hestöfl.
-
Fjögur jafn stór dekk allt að 2.16 m í þvermál fyrir sem best grip
-
Margir valkostir aukahluta höfðað til notkunar viðskiptavina svo sem snúningur á stýrishúsi
-
Full afkastageta á litlum snúningshraða
CLAAS rúllubindivélar
Þegar minnst er á CLAAS á Íslandi kemur eflaust fyrst upp í hugann rúllubindivél eða jafnvel gamla góða Markant baggabindivélin. Það er ekki skrýtið þar sem þessar vélar eru þekktar fyrir áreiðanleika, afköst og endingu.
CLAAS 355 Uniwrap rúllusamstæðurnar hafa ekki síður fallið í kramið hjá íslenskum bændum og nú hefur CLAAS kynnt Uniwrap 455 fyrir þá sem gera enn meiri kröfur.
CLAAS stórbaggabindivélar
CLAAS heyvinnutæki
Þróunin á CLAAS heyvinnutækjunum hefur eflaust aldrei verið meiri hjá CLAAS en einmitt nú og íslenskir bændur eru að kynnast gæðum CLAAS heyvinnutækjanna í æ ríkara mæli. Nú hefur vélfang á boðstólum alla vörulínuna af CLAAS heyvinnutækjunum sem samanstendur af : Disco diskasláttuvélum, Corto tromlusláttuvélum, Volto heytætlum, Liner múgavélum, Quantum og CARGO sjálfhleðsluvögnum og síðast en ekki síðast Cougar sjálfkeyrandi sláttuvélinni með 14 metra vinnslubreidd.
Hjartað í CLAAS eru þreskivélar og aftur þreskivélar enda skiptir ekki máli hvort það er CLAAS Lexion eða CLAAS Dominator, þriðja hvert korn eða fræ sem framleitt er í Evrópu fer í gegnum CLAAS þreskivél.
Því ætti CLAAS að vera fyrsti kostur hvort sem verið er að skoða kaup á nýrri eða notaðri kornþreskivél.
CLAAS múgsaxarar
Ör þróun landbúnaðar leiðir til þess að bændur kynna sér nýjar/gamlar aðferðir við öflun fóðurs og þá eiga þeir eflaust eftir að rekast á CLAAS Jaguar múgsaxarana enda framleiðir enginn meira af sjálfkeyrandi múgsöxurum en CLAAS. Eflaust eiga þó íslenskir bændur ekki eftir að slá heimsmetið sem sett var fyrir nokkrum árum en þá saxaði CLAAS Jaguar 900 múgsaxari 2.058 tonn af frekar þurru heyi á 12 klst. Að sjálfsögðu var “bletturinn” sleginn með CLAAS Jaguar 8,5 m breiðri sláttuvél og rakað saman með CLAAS Liner 3000 múgavél.
Árið 2008 var fyrsti sjálfkeyrandi múgsaxarinn sem fluttur hafði verið inn til landsins afgreiddur til Túnfangs ehf. á Suðurlandi eða Jaguar 840 Greeneye. Reksturinn hefur gengið ótrúlega vel og vélin reynst vel í alla staði eins og við var búist.
CLAAS er líka fyrir yngstu bændurna
Það er ekki bara allt um vélar á heimasíðu CLAAS þar eru líka tölvuleikir,skjámyndir, litabækur og þrautir sem bæði ungir og aldnir geta gleymt sér við með því að smella hér
CLAAS búðin er alltaf opin
CLAAS snýst ekki eingöngu um vélar því víða erlendis er CLAAS lífstíll. Með því að smella hér geturðu kynnt þér mikið úrval af CLAAS vörum s.s klæðnað fyrir börn og fullorðna, leikföng, töskur o.m.fl. sem hægt er að panta í gegnum varahlutaverslun Vélfangs í s. 580-8200 eða með því að senda tölvupóst á kristjan@velfang.is
Kynnið ykkur heimasíðu CLAAS samsteypunnar með því að smella hér.