Sigurjón Stefánsson
Árið 2009 tók Vélfang við sölu og þjónustu á JCB vinnuvélum og lyfturum og hefur salan aukist jafnt og þétt síðan þá.
Á vordögum 2013 þótti ástæða til að auka söluna enn meir og var þá ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Eftir smá útlegð frá JCB var Sigurjón Stefánsson ráðinn til starfans og í maí 2013 mætti Norðlendingurinn bólginn af sjálfstrausti til starfa og hefur staðið við stóru orðin.
Sigurjón stundar einnig mótorhjólamennsku af fullum krafti og þrátt fyrir áskoranir vinnufélaga um að hætta vitleysunni í kjölfar þess að hann skildi annan fótinn nánast eftir fyrir norðan sumarið 2013. En Sigurjón gefur ekkert eftir þar frekar en annars staðar.
Sími: +354 580 8207
GSM: +354 8400 827
Tölvupóstfang: sigurjon@velfang.is