Söludeild

Skarphéðinn Karl Erlingsson
Vopnfirðingur í húð og hár, góður sögumaður og meinfyndinn.  Skarphéðinn hefur útvíkkað starfssvið sölumannsins því að á haustin er hann eftirsóttur í göngur víða um land en einnig er hann vel hæfur sem veislustjóri á þorrablótum og árshátíðum.  Það sem vekur þó mestan áhuga samstarfsmanna hans eru hinn þjóðlegi matarsmekkur Skarphéðins og sjáanlegar afleiðingar hans.
Skarphéðinn hefur helgað sig sölu- og markaðsmálum fyrir Vélfang og eitt er víst að Skarphéðinn selur öðrum ekki vöru sem hann sjálfur hefur ekki trú á.

Sími: 580-8200
GSM: 8400-823
Fax 580-8210
Tölvupóstfang: ske hja velfang.is


Eyjólfur Pétur Pálmason

Eyjólfur er ættaður úr Landssveitinni en neyðist stundum til að viðurkenna vetursetu í Reykjavík á árum áður.  Eyjólfur hefur haft það starf fyrir höndum að vera fulltrúi Vélfangs á hestamannamótum þrátt fyrir að vinnufélagar hans efist um tilganginn. Hann hefur einnig lagt fyrir sig sönglistina og vakið óskipta aðdáun (hlátur og skelfingu) samstarfsmanna og viðskiptavina er hann hefur upp raust sína. Eyjólfur einbeitir sér að sölustörfum en sér þó einnig um það sem lýtur að daglegum rekstri fyrirtækisins.

Sími: 580-8200
GSM: 8400-820
Fax 580-8210
Tölvupóstfang: eyjolfur hja velfang.is

Öll tölvupóstföng eru skrifuð með hjá í stað att merkis til þess að losna við ruslpóst(sem dæmi bjarni hja velfang.is verður bjarni@velfang.is)

Vélfang notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á velfang.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur