Þórir Ágúst Þórðarson
Það hlaut að koma að því að Vélfang þyrfti að ráða “Hreppamann” til starfa en Þórir sem hóf störf hjá Vélfangi á vormánuðum 2007 gaf sig loks eftir nokkrar tilraunir. Þórir er “gamall” bóndi hann er því snöggur til allra verka og fljótur að greina þarfir viðskiptavinanna.
Á ótrúlega skömmum tíma hefur honum tekist að auka verðmæti varahlutalagersins með þeim hætti að nokkrir birgjar eru í alvöru að hugsa um að setja Vélfang á lista sem eitt af vöruhúsum sínum fyrir varahluti í heiminum. En hann er fyrirhyggjusamur með eindæmum og má t.d. nefna að í janúar 2008 komu leikföng í hús ætluð til sölu jólin 2007!!
En eins og aðrir starfsmenn er hann einn sterkur hlekkur í hópi starfsmanna Vélfangs og vel þegin viðbót með léttleika sínum og vinnusemi.
Sími: +354 580 8203
GSM: +354 8400 830
Tölvupóstfang: torir@velfang.is