Áramótatilboð Kuhn og Vélfangs


Nú er hið árlega Áramótatilboð Kuhn og Vélfangs komið
úr prentun og á leið til bænda í pósti. Þetta er níunda árið í röð sem Vélfang
og Kuhn taka höndum saman og óhætt að segja að fjölmargir bændur hafi nýtt sér
það í gegnum árin. Um gæði Kuhn vélanna þarf ekki að fjölyrða og á merkið marga
fastakúnna hér á landi sem vilja ekkert annað en Kuhn þegar kemur að hey og
jarðvinnutækjum. Nú þegar hafa fjölmargir pantað Kuhn rúllubindivélar bæði
i-BIO og FBP 2135 rúllusamstæðuna. Hér fyrir neðan má finna nánari upplýsingar
um tilboðið ásamt verðum.