Hátíð út í heim 2019 með Vélfangi

Bændaferð Vélfangs til Evrópu 17.-25. Febrúar 2019

Vélfang ehf., CLAAS, FENDT og KUHN taka höndum saman og efna til „Hátíðar út í heim 2019“. Stefnan er tekin á eina stærstu landbúnaðarsýningu í heimi, SIMA 2019 í París þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Lagt verður af stað frá Keflavík til Munchen 17. Febrúar og flogið heim frá París 25. Febrúar.Á leið okkar frá Munhen til Parísar munum við heimsækja verksmiðjur FENDT, CLAAS og KUHN. Einnig munum við heimsækja bændabýli sem eru með fjölbreytta framleiðslu m.a. beint frá býli.

Innifalið í verði er:  Flug, gisting í 8 nætur (þar af 4 nætur í París á Hotel Le Cardinal í París, morgunverður allan tímann, fullt fæði í 4 daga, flugvallaskattar og bókunargjald.

Dvalið er í París í 5 daga þar sem fólk getur drukkið menningu, matarmenningu og vínmenningu Parísar í sig í ró og næði.

Óhætt er að segja að síðustu „hátíðir“ sem farnar voru á árunum 1995-2015 hafi staðið undir nafni, allir skemmt sér konunglega og margt skemmtilegt gerst. En nú ætlum við að halda af stað aftur og eins og áður er markmiðið að blanda saman vinnu, skemmtun og fríi. Allir eru velkomnir með okkur í þessa ferð en hafa ber í huga að um takmarkað sætaframboð er að ræða en „fyrstir koma fyrstir fá“ og viljum við hvetja fólk eindregið til að hafa samband sem fyrst.

 

Verð á mann í tvíbýli að 159.000 kr.

Verð á mann í einbýli 189.000 kr

 

 

Allar upplýsingar um bókanir hjá starfsmönnum Vélfangs í síma 580 8200 eða með tölvupósti á eyjolfur@velfang.is eða ske@velfang.is