Nú vantar okkur góðan vinnufélaga á Akureyri en við leitum að sölufulltrúa landbúnaðar- og vinnuvéla á Norðurlandi.
Sölufulltrúi á Akureyri
Hefur þú brennandi áhuga á vélum og/eða með gott nef fyrir sölumennsku og langar að vinna í skemmtilegu umhverfi?
Vélfang ehf. leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi starf með aðsetur á starfstöð fyrirtækisins á Akureyri.
Um er að ræða sölu á landbúnaðartækjum og vinnuvélum til bænda og verktaka en Vélfang ehf er umboðsaðili fyrir leiðandi fyrirtæki á sínu sviði s.s. CLAAS, JCB, Fendt, Kuhn, Schäffer og Kverneland.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Áreiðanleiki, dugnaður og heiðarleiki.
- Góð íslensku, ensku og grunntölvuþekking
- Reynsla af notkun samfélagsmiðla við miðlun
- Reynsla af sölu- og markaðsstarfi er kostur en ekki skilyrði
Helstu Verkefni og ábyrgð
- Samskipti við núverandi og væntanlega viðskiptavini
- Þarfagreining
- Tilboðsgerð og framsetning markaðsefnis
- Sölufundir / Sölusímtöl
- Önnur tilfallandi verkefni
Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur í s. 840 0820
Umsóknir sendist á eyjolfur@velfang.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021.