Vélfang er Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo árið 2020

Nú í október sl. hlaut Vélfang ehf. viðurkenningu frá Creditinfo sjötta árið í röð fyrir að vera eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum árið 2020. Aðeins um 2 % skráðra íslenskra fyrirtækja uppfylla kröfurnar og komast á listann. Það er okkur í Vélfangi því mikill heiður að ná inn á þennan lista sjötta árið í röð en listinn er öflugur mælikvarði á styrk og stöðugleika fyrirtækjanna sem ná inn á listann. Til að ná inn á listann þarf að uppfylla fjölmörg skilyrði en þau eru:

  • Hefur skilað ársreikningi til RSK fyrir rekstrarárin 2017–2019
  • Hefur skilað nýjasta ársreikningi á réttum tíma
  • Er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2017–2019
  • Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2017-2019
  • Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2017–2019
  • Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 m.kr. rekstrarárin 2017–2019
  • Eignir voru a.m.k. 100 m.kr. rekstrarárin 2017–2019

Þennan góða árangur 6 ár í röð ber að þakka frábæru og traustu starfsfólki fyrirtækisins ásamt traustum hópi viðskiptavina.

 Þá er ánægjulegt að sjá hversu margir af viðskiptavinum Vélfangs, bæði bændur, verktakar og sjávarútvegsfyrirtæki standa sig vel í sínum rekstri og fjölmargir þeirra hlutu viðurkenningu í ár.

Vélfang er sölu- og þjónustuaðili á vélum fyrir verktaka, bændur, sveitarfélög, sjávarútveg, fyrirtæki  og stofnanir. Helstu vörumerki Vélfangs eru JCB, CLAAS, Fendt, Kuhn, Schäffer og Kverneland. Vélfang rekur starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri.