Vorverkin í fullum gangi


Kverneland AD 5 skeri einn vinsælasti alhliða plógurinn undanfarin ár.

Búnaðarfélag Bláskógabyggðar festi kaup á Kverneland ES 4 skera vendiplóg.

Notaður Överum 4 skeri bíður afhendingar.
Hefðbundin vorverk eru hafin víðast hvar um sunnan- og vestanvert landið. Sala og afhending á tækjum er í fullum gangi þessa dagnna.  Er þó varla svipur hjá sjón frá því sem áður var. Sala á notuðum jarðvinnutækjum hefur verið blómleg.
 
Enn má finna nokkur notuð jarðvinnutæki á vefsíðu Vélfangs. Þá er hægt að gera góð kaup í notuðum heyvinnutækjum. Sala þeirra er farin vel af stað og óskum við eftir  heyvinnuvélum af öllum stærðum og gerðum á skrá.  Sláttur er handan við hornið.