Nú í ár kynna Vélfang og Kuhn nýja línu af sláttuvélum sem leysa af hina vel þekktu GMD 400-800 sláttuvélar. Í staðinn koma tvær tegundir þ.e. GMD 16-24 sem fást í 1,6-2,4 metra vinnslubreiddum og eru að mestu leyti byggðar á GMD 100 línunni og eru m.a. með PROTECTADRIVE öryggisbúnaðinum. PROTECTADRIVE búnaðurinn virkar þannig að […]
Stórsýning á nýjustu gerðum JCB vinnuvéla
Á dögunum var Vélfang ehf með viðamikla kynningu á vinnuvélum frá JCB ásamt því að kynna fyrirtækið sem umboðs og þjónustuaðila JCB fyrir eigendum og rekstaraðilum vinnuvéla, þessi kynning heppnaðist afar vel og komu hátt á þriðja hundrað manns til okkar og er óhætt að segja að hátíðarsemning hafi einkennt þennan atburð öðru fremi. Alls […]
JCB vinnuvélasýning föstudaginn 30. janúar hjá Vélfangi
Vélfang býður verktökum og öllum áhugasömum um vinnuvélar á JCB vinnuvélasýningu föstudaginn 30. janúar nk. í húsakynnum Vélfangs að Gylfaflöt 32 í Grafarvogi. Sýningin stendur frá kl. 17-21 og verður fjöldi nýrra véla á staðnum, léttar veitingar í boði. Helsu vélar frá JCB á staðnum eru: JCB 8020 CTS smágrafa, JCB 409B hjólaskófla, JCB 3CX […]
Hátíð út i heim 2015 – 2 sæti laus vegna forfalla!!
Vegna óvæntra forfalla, losnuðu 2 sæti ( 1 herbergi í tvíbýli) í þessa frábæru ferð!! Fyrstur kemur fyrstur fær! Áhugasamir hafið samaband við Eyjólf í s. 8400-820 Nú hafa Vélfang, CLAAS, KUHN og FENDT tekið höndum saman og efna til hátíðar út í heim 2015. Nú skal haldið á vit ævintýra og endað í París […]
Áramótatilboð Vélfangs og Kuhn komið til bænda
Nú er hið árlega Áramótatilboð Kuhn og Vélfangs komið úr prentun og komið til bænda í pósti. Þetta er tíunda árið í röð sem Vélfang og Kuhn taka höndum saman og óhætt að segja að fjölmargir bændur hafi nýtt sér það í gegnum árin. Um gæði Kuhn vélanna þarf ekki að fjölyrða og á merkið […]
Árshátíð
Starfsfólk Vélfangs leggur land undir fót og mun næstu daga njóta lífsins í Berlín. Frá fimmtudegi til sunnudags mundum við teyga að okkur list og menningu þessarar sögufrægu borgar. Vélfang efh verður því lokað á morgun fimmtudag og föstudag, 20 og 21 Nóvember. Við þökkum fyrir skilninginn og vonum að þessi lokun komi ekki illa við viðskiptavini […]
Góð hreyfing á notuðum vélum
Heyvinnuvélar, jarðvinnutæki, dráttarvélar, taðdreifarar, gröfur, rúlluvélar. Nefndu það bara. Það er ágætis hreyfing á notuðum vélum þessa daganna. Bestu vélarnar hverju sinni seljast eðlilega fyrst. Því er tilvalið fyrir framsýna bændur að skoða úrvalið og festa sér tímanlega þá vél sem vantar. Ef sú vél eða tæki sem leitað er að er ekki á skrá […]
Haustvörur Vélfangs
Í sumarlok er rétt að skerpa á breiðri vörulínu til haustverka og fóðrunar. Margir bændur huga nú að heilfóðrun og bjóðum við jöfnum höndum traktorsdrifna og rafknúna heilfóðurblandara sem startpakka ásamt heilum fóðurkerfum, sniðin að aðstæðum og þörfum á hverjum stað. Fyrir þá sem einfaldlega vilja létta sér störfin má benda á Kuhn rúllusaxara og Tanco rúlluskerann […]
Pantið tímanlega fyrir vorið
Tíminn líður, klukkan tilfar, brátt er komið vor. Að gefnu tilefni viljum við minna bændur og búnaðarfélög á að huga strax að pöntun jarðvinnutækja fyrir vorverkin 2014 sé ætlunin að fjárfesta í þeim. Afgreiðslufrestur frá verksmiðjum lengist dag frá degi, Við höfum vissulega tryggt okkur nokkurt magn tækja á lager. En það gengur hratt á þau […]
Afhending nýrra véla hafin
Fyrstu vélarnar sem seldust á áramótatilboði Vélfangs eru þegar komnar til landsins. meðfylgjandi myndir voru teknar þegar verið var að búa fyrstu Kuhn I – BIO rúllusamstæðurnar til afhendingar. Við óskum kaupendum til hamingju og færum þeim og öðrum viðskiptavinum hugheilar þakkir fyrir ánægjuleg viðskipti. Menn fá vor í nasirnar á þessu heimili í blíðunni. Gleðilegt […]