Opið alla virka daga

Mánud. - Fimmtud. 08:00 - 17:00
Föstudaga 08:00 - 16:00

Sláðu á þráðinn

580 8200

Sendu okkur línu

velfang@velfang.is

Landbúnaður

Vélfang hefur frá upphafi staðið framarlega í sölu á tækjum til landbúnaðar. Í gegnum árin höfum við bætt við okkur nýjum og framúrstefnulegum umboðum í þeim tilgangi að þjónusta sem flesta fleti greinarinnar.

Vinnuvélar

Vélfang býður upp á myndarlegt úrval vinnuvéla af öllum stærðum og gerðum, hvort heldur fyrir verktaka, bændur eða aðra tækjaunnendur

Aukahlutir

Um árabil hefur Vélfang verið leiðandi í sölu á aukahlutum og hefur aukahlutalínan vaxið jafnt og þétt. Hvort sem um ræðir aukahluti fyrir bændur eða verktaka þá hefur Vélfang lausnina.

Fréttir og tilkynningar

FC 10030 + FC 3525 DF – work – fendt (2018)

Áramótatilboð KUHN og Vélfangs ehf. 2024-2025

Þá er komið að útgáfu árlegs KUHN tilboðs okkar í Vélfangi. Tilboðið kom fyrst út sama ár og Vélfang ehf. var stofnað eða árið 2004 og fagnar fyrirtækið því 20 ára afmæli í ár. Tilboðið er nú birt á heimasíðu Vélfangs en því miður er ekki lengur boðið upp á að senda tilboðið á öll […]

Hér má sjá þau Guðrúnu, Guðna og Lilju taka við Fendt Vario 720

Afhending á Fendt í Þykkvabæinn

Það skemmtilegasta sem við gerum er að afhenda ánægðum viðskiptavinum vélar. Í þetta skiptið afhentum við tær Fendt dráttarvélar á innan við ári til fjölskyldunnar í Hrauki í Þykkvabænum. Í júní árið 2023 fengu Guðni og Lilja afhenta nýja Fendt 314 Vario með ámoksturstækjum á uppskerudekkjum (Rowcrop). Og nú í apríl komu þau til okkar […]

Opnunartímar um jól og áramót

Jólin eru á næsta leyti og enn eitt árið að líða hjá. Við hjá Vélfangi tökum okkur frí yfir helstu hátíðadagana skerðum aðeins opnunartíma í kringum jól og áramót. Við viljum nota tækifærið og óska viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem nú er […]

Þjónustufulltrúi á verkstæði

Við leitum að einstakling til að sjá um daglega umsjón/þjónustu verkstæðis Vélfangs í Reykjavík. Helstu verkefni og ábyrgð Dagleg samskipti við viðskiptavini Vélfangs ehf. umsjón með daglegum rekstri verkstæðis, öflun varahluta á verkstæði, útskrift reikninga o.fl. Menntunar- og hæfniskröfur Reynsla af viðgerðum, menntun við hæfi er kostur Rík þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. […]

Lokað í Vélfangi 23.-24. nóvember

Starfsfólk Vélfangs leggur land undir fót fimmtudaginn 23. nóvember nk. og munu næstu daga njóta lífsins á eyjunni grænu eða Dublin á Írlandi á vegum starfsmannafélags Vélfangs. Fyrirtækið verður þessvegna lokað á meðan að við stingum af. Dagarnir sem um ræðir eru 23. og 24. nóvember eða fimmtudagur og föstudagur. Í neyðartilvikum vegna verkstæðis má hringja […]

FC 10030 + FC 3525 DF – work – fendt (2018)

Áramótatilboð KUHN og Vélfangs ehf. 2023

Þá er komið að útgáfu árlegs Kuhn tilboðs okkar í Vélfangi. Tilboðið kom fyrst út sama ár og Vélfang ehf. var stofnað eða árið 2004 og fagnar fyrirtækið því 20 ára afmæli á næsta ári. Tilboði ðer bæði birt á heimasíðu Vélfangs en verður líka sent á öll lögbýli á landinu. Best er að panta […]

Kvennaverkfall-Logo-01-300×300

Kvennaverkfall 2023

Vélfang styður heilshugar við baráttuna  gegn kynbundnu ofbeldi og kerfisbundnu launamisrétti kynjanna sem er yfirskrift fyrirhugaðs kvennaverkfalls 24.okóber.  Áhersla er lögð á það að starfsfólk sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum. Starfsfólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, skoðana eða annarra þátta.  Því  styðjum við […]

JCB Vetni 4

Heimsókn frá JCB til Íslands

Föstudaginn 15. september sl. fengum við í Vélfangi ansi merkilega heimsókn frá JCB. Þarna voru á yfirreið um Norðurlöndin nokkrir yfirmenn hjá JCB sem við áttum góðan fund með á Gylfaflötinni. Eftir að hafa skoðað fyrirtækið var þeim kynntur markaðurinn og farið yfir tækifæri og áskoranir á okkar markaði. Það er alltaf gaman að fara […]

JCB Vetni 1

JCB leiðir orkuskiptin þegar kemur að notkun vetnis

Um nokkurt skeið hefur vinnuvéla framleiðandinn JCB unnið að þróun og smíði hefðbundinna brunavéla til að ganga á vetni eingöngu. Grunnvélin í þetta verkefni er þeirra eigin JCB DieselMax og JCB EcoMax sem eru dieselvélar að uppruna með langa og góða reynslu á markaðnum. Þessi fjögura strokka 4,8 Lítra Dieselvél er í grunninn að mestu […]

Vélfang notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á velfang.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur